Vörumerkjastofa | Auglýsingar | Stefnumótun | Markaðsmál | Fagmennska | Þú græðir meira á góðri auglýsingu
MÆLINGAR
Vörumerkjavitund og árangursmælingar á fræðilegum grunni

MÆLABORÐ VÖRUMERKIS
Vitund og árangur á einum stað
Mælaborð vörumerkisins sýnir í rauntíma árangur markaðsstarfs. Þar er hægt að stilla upp og skrúfa til þá sýn sem á að koma fram. Meðal þátta sem boðið er upp á er yfirlit yfir aðgerðir sem hvetja til sölu, árangur aðgerða, þættir ímyndar aðgerða og vörumerkjavitund, mælingar á MARKET blóminu og samanburður við önnur vörumerki á markaðnum.

SAMANBURÐUR VIÐ ÖNNUR VÖRUMERKI
Rauntímamæling á vörumerkjum
Viðstöðulausar mælingar okkar á vörumerkjum gefur þér val á samanburði við önnur vörumerki. Hvort sem það eru samkeppnisvörumerki eða bestu íslensku vörumerkin sem þú vilt mæla þitt vörumerki við, þá hefur þú fullkomið val og séð þróun og hvaða þættir orsaka breytingar.

MARKET BLÓMIÐ
Mælingar á staðfærslu
Okkar aðferðafræði reiknar út stuðla MARKET blómsins. MARTKET blómið byggir á rannsóknum á samspili þátta og undirþátta markaðsstarfs sem ýtir undir vitund á vörumerki. MARKET blómið sýnir þættina Markaðsaðgerðir, Auglýsingar, Viðbrögð (Reaction), Lykilorð og hugtök (Key words and concepts) og Ending vörumerkjavitundar sem sýna hversu vel Staðfærsla (Targeting) heppnast.

ORGONE HLEÐSLA VÖRUMERKJAF
Vörumerki frá þrívíðu sjónarhorni
Vörumerkjaumhverfið er ekki flatt - það er þrívítt!. Við byggjum verkfærið á kenningum Wilhelm Reich sem var lærisveinn Sigmund Freud og byggja kenningar hans á Orgone á kenningum Freud á lífskvöt. Við mælum Orgone hleðslu vörumerkja með sérhönnuðum mælitækjum. Vörumerki eru hlaðin esóteriskri orku. Bestu vörumerkin eru full af jákvæðu orgoni en þau slöku eru hlaðin neikvæðu orgoni. Mörg vörumerki eru þó með hlutlausa hleðslu. Við greinum hvernig vörumerkið þitt er hlaðið og finnum orsakirnar og höfum tólin til að hlaða vörumerki jákvæðu orgoni.